Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarna daga fórum við á Skólavefnum fyrir nokkru af stað með nýtt tilraunaverkefni í samvinnu við Vogaskóla þar sem við afhentum nemendum 9. bekkjar lesbretti sem þeim er ætlað að nota í íslensku í stað hefðbundinna bóka. Lesbretti hafa á undanförnum misserum verið að ryðja sér til rúms á almennum markaði og margir séð í þeim mikla möguleika í kennslustofunni, en notkun slíkra tækja hefur þó ekki verið reynd í skólum landsins fyrr en nú eftir því sem við best þekkjum til. Grunnefnið sem notað er í þessari könnun er nýtt efni í íslensku úr smiðju okkar á Skólavefnum og þá býður Námsgagnastofnum nemendum og kennurum einnig upp á að nota vandað efni frá sér í dönsku og samfélagsfræði. Kunnum við þeim kærar þakkir fyrir það.
Aðilar frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands munu sinna óháðu eftirliti með verkefninu. Þeir munu gera skýrslu um verkefnið þar sem lögð verður áhersla á að fylgjast með öllum þeim breytum sem tengjast notkun rafbóka hjá nemendum. Hér eru nokkrir af þeim punktum sem reynt verður að leggja mat á:
- Geta rafbækur komið í stað hefðbundinna kennslubóka?
- Hjálpa rafbækurnar nemendum sem glíma við lestrarörðugleika?
- Auka rafbækurnar lestraráhuga hjá nemendum?
Megináherslan í þessu verkefni er að skoða notkun rafbóka í raunumhverfi og sjá hvernig þær nýtast í kennslu. Mikil umræða hefur farið fram um sparnaðarhliðina á notkun rafbóka fyrir skólaakerfið og má ljóst vera að flestir aðilar séu sammála um að til lengri tíma litið nái rafbækur fram sparnaði í menntakerfinu, framleiðslu, dreifingu og kennslu.
Þetta verkefni er okkar fyrsta innlegg inn í þá umræðu sem átt hefur sér stað varðandi þessa nýju tækni að undanförnu og við munum að sjálfsögðu kynna niðurstöðurnar hér á síðu okkar eins fljótt og auðið er. Við viljum svo nota tækifærið og þakka öllum aðilum sem koma að þessu verkefni með okkur kærlega fyrir.