Lesbrettabylting Skólavefsins

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarna daga fórum við á Skólavefnum fyrir nokkru af stað með nýtt tilraunaverkefni í samvinnu við Vogaskóla þar sem við afhentum nemendum 9. bekkjar lesbretti sem þeim er ætlað að nota í íslensku í stað hefðbundinna bóka. Lesbretti hafa á undanförnum misserum verið að ryðja sér til rúms á almennum markaði og margir séð í þeim mikla möguleika í kennslustofunni, en notkun slíkra tækja hefur þó ekki verið reynd í skólum landsins fyrr en nú eftir því sem við best þekkjum til. Grunnefnið sem notað er í þessari könnun er nýtt efni í íslensku úr smiðju okkar á Skólavefnum og þá býður Námsgagnastofnum nemendum og kennurum einnig upp á að nota vandað efni frá sér í dönsku og samfélagsfræði. Kunnum við þeim kærar þakkir fyrir það.

Aðilar frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands munu sinna óháðu eftirliti með verkefninu. Þeir munu gera skýrslu um verkefnið þar sem lögð verður áhersla á að fylgjast með öllum þeim breytum sem tengjast notkun rafbóka hjá nemendum. Hér eru nokkrir af þeim punktum sem reynt verður að leggja mat á:

  • Geta rafbækur komið í stað hefðbundinna kennslubóka?
  • Hjálpa rafbækurnar nemendum sem glíma við lestrarörðugleika?
  • Auka rafbækurnar lestraráhuga hjá nemendum?

Megináherslan í þessu verkefni er að skoða notkun rafbóka í raunumhverfi og sjá hvernig þær nýtast í kennslu. Mikil umræða hefur farið fram um sparnaðarhliðina á notkun rafbóka fyrir skólaakerfið og má ljóst vera að flestir aðilar séu sammála um að til lengri tíma litið nái rafbækur fram sparnaði í menntakerfinu, framleiðslu, dreifingu og kennslu.

Þetta verkefni er okkar fyrsta innlegg inn í þá umræðu sem átt hefur sér stað varðandi þessa nýju tækni að undanförnu og við munum að sjálfsögðu kynna niðurstöðurnar hér á síðu okkar eins fljótt og auðið er. Við viljum svo nota tækifærið og þakka öllum aðilum sem koma að þessu verkefni með okkur kærlega fyrir.

Posted in Nýtt og nytsamlegt, Skólavefurinn | Skrá ummæli

Jólablogg

Jólin nálgast og er Skólavefurinn mikilvægur þáttur í jólaundirbúningi margra kennara. Á Jólasíðunni er að finna ógrynni jólatengds efnis sem er í senn gagnlegt og skemmtilegt. Jólaföndur, jólastærðfræði og jólaleikir og -þrautir er meðal þess sem þar má finna.

Jólagjafasmiðjan er svo síða sem er öllum opin og er þar að finna mikið af fallegum jólagjöfum sem auðvelt er að sækja og útbúa sem persónulegar og skemmtilegar gjafir. Hægt er að prenta þaðan út bækur og dagatöl, með myndum eða til að skreyta sjálf og flottustu gjafirnar eru sennilega hljóðbækurnar sem auðvelt er að sækja, skrifa á disk og útbúa síðan fallegt hulstur á. Búum til persónulegar jólagjafir þessi jólin, gjafir sem allir hafa gaman af að búa til, gefa og þiggja. Þið getið bent öllum á Jólagjafasmiðjuna sem er á www.jolagjof.is.

Posted in Nýtt og nytsamlegt, Skólavefurinn, Skólavefurinn mælir með | Skrá ummæli

Samræmdu

Þá er að koma að samræmdum könnunarprófum. Þó að þau eigi aðeins að vera könnunarpróf þá er það okkar reynsla að nemendur sem standa sig vel á þeim og eru að bæta árangur sinn frá fyrri samræmdum prófum og vorprófum fá aukið sjálfstraust inn í veturinn sem er að hefjast og standa sig betur fyrir vikið. Margir foreldrar leita til Skólavefsins um þetta leiti enda erum við með talsvert af þjálfunarefni sem nýtist vel í undirbúningi fyrir prófin. Það eru ekki síst gömul samræmd próf (útprentanleg og gagnvirk) sem reynast vel.

Prófin og heilmikið almennt þjálfunarefni í íslensku og stærðfræði er að finna á Prófasíðunni okkar og hentar það einnig vel fyrir kennara. Við hvetjum kennara til þess að benda foreldrum sem vilja finna eitthvað aukalega fyrir börn sín á Skólavefinn. Þar geta allir áhugasamir fundið eitthvað gagnlegt í undirbúningi fyrir samræmdu prófin.

Posted in Skólavefurinn, Skólavefurinn mælir með | Skrá ummæli

Velkomin til starfa :)

Við bjóðum kennara og nemendur velkomna til starfa þennan veturinn og vonum að allir hafi átt ánægjulegt sumar. Í þessari fyrstu bloggfærslu vetrarins ætlum við að birta myndband sem farið hefur eins og eldur í sinu um internetið og ekki síst milli kennara. Enn og aftur bendum við á fyrirlestur með Sir Ken Robinson sem er hér búið að teikna upp myndrænt. Það er tilvalið að horfa á þennan fyrirlestur í upphafi skólaárs hvort sem þið eruð kennarar, nemendur eða foreldrar. Við á Skólavefnum fögnum öllum hugmyndum sem snúa að því að bæta skólakerfið, ekki síst ef það felur í sér að hugsa út fyrir kassann.

Posted in Erlent, Menntamál, Nýtt og nytsamlegt, Skólavefurinn mælir með | Skrá ummæli

Námsgagnasýning Námsgagnastofnunar

Við hér á Skólavefnum viljum minna á að við verðum með allt okkar hafurtask á námsgagnasýningu Námsgagnastofnunar í húsnæði Menntavísindasviðs í Stakkahlíð. Við munum þar sýna nokkur ný verkefni og stöndum við fyrir tveimur spennandi fræðslufundum sem við vonumst til að sjá sem flesta á.

 

Kl. 9:00 - Lestu.is – Rafbækur í skólastarfinu (stofa H 206 kl. 9:00)
Rafbókasíðan Lestu.is fór í loftið í janúar og er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Þangað er hægt að sækja rafbækur fyrir alla aldurshópa til að lesa í tölvunni eða á þar til gerðum spjaldtölvum og lesbrettum. Flestir eru sammála um að rafbækur muni spila stórt hlutverk í skólakerfinu í framtíðinni. Skólar sem eru áskrifendur að Skólavefnum fá aðgang að Lestu.is án endurgjalds 2011. Á þessum fræðslufundi ætlum við að fjalla almennt um rafbækur, hvernig þær munu koma til með að nýtast í skólum og svo að sjálfsögðu um Lestu.is og hvernig skólar geta nýtt sér síðuna, en á henni er nú þegar að finna örnámskeið um valdar bækur sem er tilvalið að nýta í kennslu. Framtíðin er núna, komið og fræðist um sannkallaðar nýjungar í skólastarfi.
Umsjón: Páll Guðbrandsson og  Jökull Sigurðsson.

 

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra opnaði Lestu.is 13. janúar 2011

Kl. 11:00 – Vanda málið – Íslenska á miðstigi (stofa H 207 kl. 11:00)
Vanda málið er yfirheiti á nýju heildstæðu námsefni í íslensku fyrir miðstig. Efnið samanstendur af tveimur lesbókum og tveimur vinnubókum fyrir hvern árgang en að auki fylgir efninu ítarlegur vefstuðningur. Þennan fyrsta vetur sem  Vanda málið var í kennslu var rúmlega þriðjungur nemenda á miðstigi að vinna með það í heild eða að hluta. Höfundar efnisins og útgefandi hafa fylgst náið með því hvernig kennsla á efninu hefur gengið í vetur. Brugðist hefur verið við ábendingum kennara með því að setja efni inn á stuðningsvefinn til stuðnings fyrir nemendur og kennara. Á þessum fræðslufundi munu Páll Guðbrandsson og Baldur Hafstað kynna Vanda málið auk þess að fjalla um þær viðbætur sem hafa verið settar á stuðningsvefinn í vetur og það sem væntanlegt er. Hér verður því af nógu að taka fyrir þá sem unnið hafa með Vanda málið og þá sem vilja kynnast því í fyrsta sinn.
Umsjón: Páll Guðbrandsson og Baldur Hafstað

 

Höfundar Vanda málið-bókanna

Við munum einnig kynna nýtt efni í fjármálakennslu sem við bindum miklar vonir við og hefur vakið mikla athygli þar sem það hefur verið kynnt.
Posted in Menntamál, Skólavefurinn mælir með, Vanda málið | Skrá ummæli

Eru strákar í vondum málum?

Við á Skólavefnum höfum gríðarlega gaman af því að horfa á fyrirlestra um hin ýmsu málefni á vefsíðunni TED.com (TED stendur fyrir Technology – Entertainment – Design). Þar er fjallað um allt milli himins og jarðar og áhorfandinn er alltaf að rekast á eitthvað nýtt og spennandi. Hér er einn stuttur fyrirlestur sem er í raun bara hugleiðing.

Sálfræðingurinn Philip Zimbardo er þekktur fyrir að hafa framkvæmt eina frægustu sálfræðitilraun allra tíma: Stanford fangelsistilraunina. Hann veltir því fyrir sér í þessum fyrirlestri af hverju strákar séu að dragast aftur úr stelpum á nær öllum sviðum menntunar og setur fram sína kenningu. Eruð þið sammála? Deilið ykkar skoðun endilega hér að neðan.

Posted in Erlent, Menntamál, Skólavefurinn mælir með | Skrá ummæli

Lestu.is – Örnámskeið

Rafbókasíðan Lestu.is fór í loftið 13. janúar og er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. margir spá því að rafbókabyltingin verði næsta stóra byltingin í skólamálum og erum við á þeirri skoðun að það sé aðeins tímaspursmál um það hvenær rafbækurnar hefja innreið sína inn í íslenskar skólastofur. Það eru ýmsir kennslufræðilegir og fjárhagslegir kostir sem mæla með notkun rafbóka, núverandi fjárhagslegt árferði á Íslandi er þó ekki til að flýta fyrir innleiðingu þeirra enda viss byrjunarkostnaður sem því fylgir.

Skólarnir sem eru með áskrift að Skólavefnum, sem eru reyndar um 95% grunnskóla landsins, fá árið 2011 einnig ókeypis aðgang að rafbókasíðunni Lestu.is og hljóðbókasíðunni Hlusta.is (hafið endilega samband við okkur ef þið eruð ekki byrjuð að nýta ykkur þennan aðgang). Við hvetjum alla kennara til þess að nýta þennan aðgang og skoða vel það sem Hlusta.is og Lestu.is hafa upp á að bjóða. Sérstaklega viljum við þó vekja athygli á Örnámskeiðum Lestu.is.

Örnámskeið eru ný og áhugaverð þjónusta sem Lestu.is býður notendum upp á til að styðja þá í að tileinka sér valin bókmenntaverk og gera lestur þeirra almennt markvissari. Í hverju námskeiði er tekin fyrir ákveðin bók eða höfundur. Þátttakendur sækja bókina á Lestu.is (sem flettibók í tölvunni, sem rafbók í t.d. Kindle eða iPad en einnig er hægt að panta hana í fallegri kilju). Þegar þátttakendur hafa svo lesið bókina skoða þeir ýmiskonar ítarefni áður en þeir horfa á fjóra myndbandsþætti þar sem fjallað er um söguna út frá bókmenntalegu sjónarmiði á aðgengilegan og skemmtilegan hátt:

  • 1. þáttur: Höfundur og umhverfi
  • 2. þáttur: Persónur og persónusköpun
  • 3. þáttur: Tími og þjóðsagnaminni
  • 4. þáttur: Lokaumræður

Fyrsta bókin sem tekin er fyrir er sagan Sýður á keipum eftir Jón Trausta. Ingólfur Kristjánsson, ritstjóri Skólavefsins stjórnar umræðunni og er Baldur Hafstað íslenskuprófessor viðmælandi hans að þessu sinni. Þetta er efni sem er tilvalið til að nota í kennslu. Þetta fyrsta örnámskeið er öllum opið og geta nemendur t.d. lesið bókina, sem er stutt, í flettibókarforminu heima fyrir. Þeir sem eiga Kindle eða iPad nýta sér það auðvitað. Svo geta nemendur og kennari horft á myndbandsþættina í kennslustofunni saman og munu þeir klárlega kveikja skemmtilega bókmenntaumræðu í tímum.

Hugsanlega eru nú fáir að fara að nýta sér þetta núna í vor en við hvetjum ykkur eindregið til þess að hafa þetta í huga þegar dagskrá næsta vetrar er mótuð.

Það er alltaf eitthvað nýtt og spennandi hjá Skólavefnum og samstarfsaðilum.

Sýður á keipum – örnámskeið á Lestu.is

Posted in Menntamál, Nýtt og nytsamlegt, Skólavefurinn mælir með | Skrá ummæli